minn staður

Hold infinity in the palm of your hand and eternity in an hour............

25.04.2010 22:22:18 / hilda

When all seams lost....

When all seams lost there is peace to be found,
when ewerything seam to have been taken from you
quiet your mind and look to the stars
and bealive that you are not alone,
i am there holding your hand
and guieding you ewery step you take,
my love is endless, and my heart is open,
so quiet your mind and look to the stars.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 11:54:25 / hilda

Úmpapa Úmpapa

Jæja þá er komið að árlegu bloggi hjá Dugnaðarforkinum mér!
Jæja það sem hefur gerst þetta síðasta ár er ::::::::
Ég varð þrítug, börnin stækkuðu upp úr öllu valdi, maðurinn var eins, sætur skemmtilegur og í alla staði yndislegur.
Ég verð að segja frá því að ég var að taka barnið inn úr vagninum og haldiði ekki að það hafi allt í einu gert bara þessa líka Brjáluðu rigningu/snjókomu já eða haglél (hugsa að það þjáist fleiri úr valkvíða heldur en við mennirnir !!)
En það er bara hressandi, allavegana gott að sitja inni við dúkalagt borð með rjúkandi kaffi og kveikt á kertum..........
Annars tókst mér á föstudaginn að gera hið óyfirstíganlega, ég er hætt að hjakka í sama farinu og ég hvaddi niður draug fortíðarinnar!!!!!!!!!!:haha:
Hélt að þetta yrði ógjörningur (var allavegana farin að hallast að því eftir öll þessi ár) en þegar á hólman var komið var þetta bara barnaleikur og ég fór að trúa því í fyrsta sinn í langan tíma að það býr meira í mér en ég geri mér grein fyrir, það er svo sem ekki verra að vera farin að sjá að maður sé til mikils megnugur og er bara alveg hreint ágæt, ég fann fyrir einhverri stóískri ró færast út í æðarnar og það kom mér á óvart!!!!!!
Ég heirði sjálfa mig hugsa "bíddu bíddu hvað er að gerast er hún Hilda orðin fullorðin??"
Já ég held það bara, ég sat og ræddi við manneskju og veitti henni ráð og hún (manneskjan) hafði orð á því hvað það væri gott að tala við mig og að ég hefði þroskast all mikið!!!!!!
Húrra fyrir mér!!!!!!
Ég get sagt með sanni að ég er hreint alveg ágætur pappír (þó svo að ég sé ekki búin að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór)
Ætli þolinmæði og úthald fylgi árunum???
Hef reyndar ekki fundið fyrir því enn en það kanski kemur á næsta ári??
Hver veit.
Jæja þá er því lokið svo þar til næst
Yfir og út *Hilda

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 20:16:03 / hilda

Jæja er þetta málið??

Jæja þá fer að líða að deginum sem mér hefur alltaf hlakkað mjög mikið til en er einhvernvegin mjög svo uggandi yfir núna, langar mest til að sofa hann af mér!!
Er ég stödd í einhverri fjárans miðaldurs kreppu?
Eða bara kreppu punktur?
Er ekki að höndla hlutina nógu vel þessa dagana og botna hvorki upp né niður í sjálfri mér það virðist ekkert vera nógu gott fyrir mig og allt hálf pirrandi og svart.
Er á fullu að reyna að rífa mig upp á rassgatinu og vera jákvæð, en helv.. hún Pollyanna lætur eitthvað á sér standa.
Vera HRESS HRESS HRESS.............................
Neibb það er ekki að virka.............................

Jæja ég held áfram að vera yfirmáta jákvæð og glöð:klikk::klikk::klikk:
Kv ELLIKERLING

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 09:12:58 / hilda

Lengi lifir í gömlum glæðum......

Jæja þá er hreint ótrúlega frábærri helgi lokið og óhætt er að segja að þetta hafi verið í alla staði óendanlega gaman og gott, og vil ég þakka drotningunum mínum fyrir:haha:
Við hittumst æskuvinkonurnar í sumarbússtað í Munaðarnesi og drukkum og hlógum og skemmtum okkur sem aldrey fyrr:haha::haha::haha:
Ekki leiðinlegt það................


Nú fer að koma að því sem mig langar að fresta um ó ákveðinn tíma(kanski fram í hið óendanlega) 30 ára afmæli drotningarinnar af Skagen!!!!!!!
ÚFFFFFFFF
er ekki að sjá hvernig hlutirnir gátu æxlast svona og árin liðið svonaq hratt!!!!!!!
Hvað er það sem veldur þessu????
Er með í maganum svo vægt sé til orða tekið.

Jæja ætla að halda áfram að vera með í maganum og fá mér kaffi.
KOSSAR OG KNÚS HILDA......

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 08:01:35 / hilda

Jahérna hér.....

ég vaknaði í morgun haldin yfirþyrmandi gleði yfir komandi tímum.....

Já það er víst að koma að uppáhalds tímanum á dagatalinu......
JÓLUNUM!!!!!!!!!!!!!!!!:haha:
Og það sem furðulegast er er að ég hef engan tíma fyrir þau strax!
Er ekki búin að versla svo mikið sem eina gjöf (sem er vægt til orða tekið stórfurðulegt þar sem um er að ræða MIG...)
Reyndar er ég búin að skreyta allt í huganum og til að auka enn meira á jólagleði mína fékk ég senda jólaföndur bók í pósti sem er stútfull af frábæru jóladóti og langar mig að gera það ALLT!!!!!!!
En nú er bara málið að skipuleggja sig, fyrst er það LANGÞRÁÐ bústaðarferð með Ingu Jónu genginu og við erum alveg að ræða um heljarinnar gleði og glasalyftingar.....
Svo er það matarboð fyrir familíuna þann 9. nóv!!!(hvað skildi vera í gangi þá????
Svo er það grímubúninga partíið þann 14. nóv........
OG ÞÁ MEIGA JÓLIN KOMA!!!!!!!!!!!!!!!!!:haha::haha::haha:
En nú er það bara að huga að komandi veislum og sjá hvernig það fer, er annars með hvíðahnút í mallakút yfir komandi afmæli og er ekki alveg að ná upp í nefið á mér hversu gömul ég er að verða :evil::evil::evil:
En er ekki sagt að konan er eins og gott vín hún batnar bara með árunum!!!!!!!!!!!!!!
Jæja yfir og út ellikelling........

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2008 09:40:37 / hilda

Litla tröll......

Fyrir þá sem ekki vita á ég lítið tröllabarn,
hann er það allra sniðugasta og besta sem ég haf séð(hóst,hóst)
núna áðan kom ég að honum þar sem hann var búinn að rífa allar pullurnar út úr sófanum og henda þeim á gólfið.....
mamman sagði: litla tröll hvað ert þú að gera?
trölli svarar:giggli gúggli gúggli....
mamman tekur hann í fangið setur í brýrnar og segir: þetta má ekki!!!!
trölli horfir á mömmuna galopnar munnin ræðst á hana með BLAUTUM kossum réttir upp hendina, brosir ,vinkar og segir ba ba (þýðist: bæ bæ )
Hvað á mamman að gera hún brosir og segir : æ farðu inn í herbergi ...........

Önnur amman horfði á trölla á laugardaginn og spurði síðan foreldrana: Hvar ætlið þið að hafa jólatréð???
og eftir stutta umhugsun segir hún: ekki getið þið haft það uppi á borðstofuborði það er ekki óhult þar!!!!!!!!!!!

Sama dag horfir hin amman á hann og spyr þess sama!!!!
Svo segir hún pollrólega : þið verðið bara að hengja það á talíu upp í loft!!!!!!!!!!!!!!

Já semsagt þannig er staðan með litla tröllið!!!!
HANN ER SNAR!!!!!!!!!!!!!!!!

En hann passar það að mamman sé á tánum allan daginn og það er alveg öruggt að henni leiðist EKKI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!1

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 18:47:49 / hilda

Verum Góð og Glöð.......

Það skiptir öllu máli þessa dagana að hafa þessi orð að leiðarljósi,
verum góð hvert við annað og styðjum hvert annað.
Njótum augnablyksins sem okkur er gefið og horfum á okkar nánustu og börnin okkar og gleðjumst yfir þeirri hamingju að eiga þau því þau eru það dýrmætasta sem til er.


Knús og kossar Hilda.

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 18:07:28 / hilda

Hamstra hamstra hamstra

Jæja er þetta ekki bara spurning um að fara að baka í frystirinn og hamstra ALLAN mat?
Það verður GAMAN að sjá hver útkoman verður.......
Neiðarástand segja stjórnmálamenn og er þetta þá ekki bara spurningin um að mæta þessu með brosi á vör og leika Pollyönnu leikin sem aldrey fyrr???????
Einhverstaðar heyrði ég : Sælir eru einfaldir.........................
Jæja einföld Pollyanna fer að elda súpu og sjá hversu mikið er í frystirnum og hverju má bæta við!!!!!!!!!
Ertu að baka, baka brauð???????????
Jæja verum glöð með það sem að við eigum og feisum lífið með brosi á vör!!!!!!!!!
Ps börnin eru glöð að borða snúða úr Gamlabakaríinu á Ísafyrði....
Tökum okkur þau til fyrirmyndar.........
Yfir og út Hilda

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 12:57:52 / hilda

Bla bla bla

Hef voða lítið að segja er búin að vera algjörlega orkulaus og ekki með öllum mjalla.
Á einhver auka orku sem hann/hún þarf að losna við????????????
Er tilbúin að taka svoleiðis kvikindi að mér:haha:
Jæja hafið það gott og ég læt vita af mér þegar ég hef eignast einhverskonar líf......
Kús og kossar Hilduz

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 12:56:36 / hilda

Gerir maður soleiðis????

Jæja,
að blogga gerir maður soleiðis??

Hvað er betra á góðum og sólríkum degi en að fara með litla tröll niður að vita með nesti og nýja skó og horfa á fuglana tína strá og leika sér? Fara svo í leikskóla heimsókn og fá kaffi og með því og koma svo heim og setja tröll í hvíld og uppgötva að maður er með sand á milli brjóstanna og hor á öxlinni?
Einstaklega góður dagur eftir viku inniveru og leiðindi...........

Kossar og knús úti konan.

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 16:34:48 / hilda

Laslegt lið

Jæja já,
við erum komin heim frá Búlgaríu og erum brún og sæt, (ekki að við höfum ekki verið það áður!!)
ég er samt alveg búin að sjá það að ég er ekki góður pappír í utanlandsferðir án barnanna minna var í raun og veru hálf geðveik og skrítin8|
En þið fáið mig aldrey til að skipta á börnunum mínum og öllum heimsins peningum!!!!!!
EN aftur á móti væri ég til í að skipta á veikindum og ja kanski kókosbollu:!::!::!:

Kúkableyja bíður
Heil og sæl að sinni Ásthildur utanlandsfari............

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2008 00:35:21 / hilda

HELV::::::::::::::::

Þessa stundina er ég ekkert  sérlega kát en FÍFLIN já ég leyfi mér að segja FÍFLIN hjá TERRA NOVA stittu ferðina okkar um einn og hálfan dag!!!!:evil::evil::evil:
Ég veit ekki hvort ég á að hlægja eða gráta ég varð vægast sagt mjög pissed:!:
Svo voru þeir fyrst með þá afsökun að það hefði verið vittlaust bókað í vélina úti og hérna heima, en svo kom það upp úr krafsinu að það er bölvað kjaftæði það eru bara svo margir sem hættu við ferðir þegar hækkunin varð og það er svo dýrt að fljúga heim með hálf tóma vél að þeir eru að sameina tvær ferðir. Það verður semsagt þannig að við förum frá Varna og beint til Ítalíu og tökum upp farþega þar og svo heim:^):^):^)
Gert er ráð fyrir klukkutíma stoppi á Ítalíu (sem ég get lofað ykkur að verður lengra........)
Úffffff ég gæti öskrað ur geðvonsku akkurat núna...............
Ég er á fullu að reyna að róa mig niður en það er ekki að takast sem skildi, ég er að selja sjálfri mér það að það sé ekkert sem ég get gert annað en að njóta tímans sem við höfum þarna úti og slaka á.............................
Annars rakst ég á nokkrar línur hjá Hrundinni minni áðan sem mér finnast alveg magnaðar, ég læt þær fylgja með og kanski munu þær kenna mér eitthvað!?


To see a world in a grain of sand
and a heaven in a wild flower
hold infinity in the palm of your hand
and eternity in an hour.......
                             
                                      Wiliam Blake.




Og með þessum orðum kveð ég.

P.s það eru 11 dagar í útlönd8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 15:02:07 / hilda

Ísbjarnablús

Jahá það er ekkert annað, á meðan hitastigið á landinu hækkar óðfluga sækja ísbirnir okkur heim.
Er einhver tvísögn í þessu öllu saman???
En annars gleðilega þjóðhátíð allir.......
Á meðan landinn skemmtir sér við hátíðahöld með gasblöðru í annari og candy flos í hinni sit ég ein heima og sakna barnanna minna og eiginmans sem eru einmitt að skemmta sér við hátíðahöld í Hafnafyrði, en ég sit ein að deyja, fékk mér líka þessa finu flensu svona nánast um mitt sumar og er ofsalega GLÖÐ með það eða ÞANNIG, held barasta að það séu ár og aldir síðan ég varð svona veik seinast.
Er með hrillilegann hósta og það kurrar hrillilega skemmtilega í mér þegar ég anda, og svo ér ég stífluð upp í heila OG með höfuðverk og beinverki.
Mér finnst ég vera versta mamma vestan Alpafjalla að vera ekki með strákunum mínum úti að leika og horfa á alla dýrðina...............
BUHUUUUUUU hefur aldrei langað jafn mikið til að vera í fjölskylduleik eins og akkurat núna!!!:cry:
Jæja ætla að reyna sofa þennan dag bara í burtu og veikindin með og vona að ég vakni eldhress og borubrött og allt verði eins og í vondum draum.
Haldiði ekki að það takist???
Hilsen Hilda með hor..........

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 11:56:42 / hilda

OMG

Jibbí 14 dagar í útlönd


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 20:06:23 / hilda

Það styttist óðfluga

Jæja 19 dagar:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10